Þrettán manns hafa látist í kólerufaraldri sem geisar í Afríkuríkinu Chad. Nærri 240 manns hafa smitast af bakteríunni og dánartíðni er 5,4 prósent.Faraldurinn er að mestu leyti bundinn við norðurhluta landsins, í héraðinu Hadjer Lamis og borginni N'djamena.Heilbrigðisyfirvöld í Chad lýstu faraldrinum yfir í lok júlí en rúmlega 50 þúsund manns hafa verið bólusett síðan þá.Fleiri Afríkuríki hafa greint frá kólerufaraldri á undanförnum mánuðum, þar á meðal Mið-Afríkulýðveldið, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og Nígería.Kólera er bráð niðurgangssýking sem berst með menguðu vatni eða mat. Almennt er auðvelt að meðhöndla kóleru en sýkingin getur reynst hættuleg ef ekki er brugðist skjótt við.Heilbrigðisyfirvöld í Chad segja takmarkaðan aðgang að hreinu drykkjarvatni og skort á hreinlæti valda því að