Reykur í stigagangi í Asparfelli

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um reyk í stigagangi í blokk að Asparfelli 6 í Reykjavík um fimm mínútur í fimm síðdegis. Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang í Breiðholti.„Það er einhver reykjarslæðingur á stigagangi og reykjarlykt. Það er ekki búið að finna upptökin að þessu. Ég er með fjóra dælubíla og þrjá sjúkrabíla á staðnum. Þetta er stór blokk,“ segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.Varðstjórinn segir slökkvilið búið að leita víða í blokkinni án árangurs. Viðbragðsaðilum hafi verið bent á að reykjarlykt hafi fundist eitthvað fyrr en tilkynnt var um hana. Því sé hugsanlegt að ekki sé eldur laus.Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykur í stigagangi í Asparfelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd