Allir skipverjarnir á Bandero, skipi Paul Watson samtakanna, 21 að tölu, freista þess að fá endurkomubanni Útlendingastofnunar hnekkt. Lögmaður fólksins gagnvart Útlendingastofnun segist aldrei hafa séð jafn hraða málsmeðferð. Líklega fara þeir fyrstu úr landi í vikunni. TVÖ MÁL Í GANGI Í áhöfn Bandero var 21 skipverji frá 13 löndum. Segja má að tvö mál séu í gangi hvað þau varðar; annars vegar mál Útlendingastofnunar sem hefur vísað öllum úr landi og slíkri brottvísun fylgir bann við að koma aftur til landsins, mislangt eftir því hvaðan fólkið kemur.Fólkinu er vísað úr landi á grundvelli 98. greinar útlendingalaganna þar sem segir meðal annars að heimilt sé að vísa útlendingi úr landi, sem sé án dvalarleyfis, sé það nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna, en ekki þótti