Risa, risa melónur á Selfossi

„Ég hef aldrei séð svona stærð á melónum en hver þeirra er tíu til tólf kíló og bragðast einstaklega vel“, segir Tómas Kristjánsson, verslunarstjóri í Bónus á Selfossi aðspurður um melónurnar í versluninni þessa dagana, sem vakið hafa mikla athygli viðskiptavina. „Já, mér sýnist fólk vera ánægt en jafnframt mjög hissa á stærð melónanna, það hefur enginn séð neitt þessu líkt áður í þessari verslun en það er alltaf gaman að koma fólki á óvart eins og í þessu tilfelli,“ bætir Tómas við.
Risa, risa melónur á Selfossi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd