Vistunardagar barna vegna sakamála óvenju margir

Vistunardögum barna á lokaðri deild Stuðla á grundvelli laga um meðferð sakamála hefur snarfjölgað síðustu tvö ár. Stúlkur voru í meirihluta þeirra sem dvöldu á deildinni í fyrra, sem er breyting frá fyrri árum.Þetta kemur fram í samantekt Barna- og fjölskyldustofu um úrræði og umsóknir um þjónustu. Árið 2017 voru vistunardagar barna á lokaðri deild á meðferðarheimilinu Stuðlum á grundvelli laga um meðferð sakamála tæplega 150 en þeim fækkaði umtalsvert fram til ársins 2023. MARGFALT FLEIRI VISTUNARDAGAR SÍÐUSTU ÁR 100. grein laga um meðferð sakamála fjallar um að í stað þess að úrskurða sakborning í gæsluvarðhald geti dómari meðal annars mælt fyrir um vistun á sjúkrahúsi eða viðeigandi stofnun.Árið 2024 voru vistunardagar á grundvelli hennar 759 og árið 2025 voru þeir 567. Þess má geta
Vistunardagar barna vegna sakamála óvenju margir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd