Samfélag bókaunnenda á samfélagsmiðlum gengur undir nafninu bókatok. Dæmi eru um að umræða þar verði til þess að áratugagamlar bækur rjúki út í bókaverslunum hérlendis.Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, fagnar umræðu um bækur og áhuga á samfélagsmiðlum. Einar Björn Magnússon, bóksali í Skáldu, tekur eftir því að stór hluti af hans kúnnahóp eru að ungt fólk á þrítugs eða fertugsaldri. „Ég held að samfélagsmiðlar hafi bara mjög mikið að segja um það.“ GÁTU EKKI HÆTT Bókaboðið er mánaðarlegur hlaðvarpsþáttur, hluti af hlaðvarpinu Teboðinu. Birta LÍf Ólafsdóttir, annar þáttastjórnenda, segir hugmyndina hafa kviknað þegar vinkona þeirra mælti með vinsælli bók.„Við vorum búnar að setja okkur markmið að hlusta á fleiri bækur, segir Birta. „Í kjölfarið á því duttum við