Ívið meiri makríll en í fyrra og mikil útbreiðsla kolmunna

Þéttleiki makríls í íslenskri lögsögu er ívið meiri en í fyrra en þó minni en árin þar á undan. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum Hafrannsóknarstofnunar. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson lauk þátttöku sinni í árlegum alþjóðlegum uppsjávarleiðangri að sumarlagi í Norðurhöfum 30. júlí. Megintilgangur hans var að rannsaka útbreiðslu og þéttleika makríls, síldar og kolmunna.Makríll mældist á 21 af 34 yfirborðstogstöðvum, sem allar voru staðsettar austan við landið eða sunnan við Jan Mayen. Makrílseiði fengust á einni yfirborðstogstöð fyrir sunnan landið.Þéttleiki kolmunna reyndist ágætur. Kolmunni fékkst á ellefu yfirborðstogum fyrir austan og sunnan landið, sem stofnunin segir vera óvenjulegt og bendi til mikillar útbreiðslu kolmunna við landið. Líkt og undanfarin ár var norsk-íslens
Ívið meiri makríll en í fyrra og mikil útbreiðsla kolmunna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd