Gangi Ísland í Evrópusambandið hefur það áhrif á flesta grunnþætti landbúnaðarins. Ekki er eingöngu hægt að meta hugsanlega kosti og galla aðildar á fjárhagslegum forsendum – horfa þarf til fæðuöryggis og þess hvar ákvörðunarvaldið muni liggja.Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sem Bændasamtök Íslands létu vinna um áhrif mögulegrar aðildar Íslands að ESB á íslenskan landbúnað og birt var í morgun. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, ræddi efni hennar í hádegisfréttum útvarps.Hann segir niðurstöðu skýrslunnar að innganga í ESB væri óhagstæð fyrir íslenskan landbúnað.„Það hefur komið fram áður, hjá öðrum en okkur meira að segja, að það hafa fá ef nokkur ríki gengið í þetta sameiginlega bandalag, Evrópusambandið, á forsendum landbúnaðar eða til að byggja upp sinn la