Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væntir þess að það takist ekki að skila afgangi á rekstri ríkissjóðs fyrr en á árinu 2031, samkvæmt spá sjóðsins, en núgildandi fjármálaáætlun stjórnvalda gerir hins vegar ráð fyrir hallalausum fjárlögum strax á næsta ári. Sjóðurinn horfir aðeins til aðgerða sem þegar er búið að leggja fram fyrir Alþingi og segir markmið stjórnvalda í ríkisfjármálum vera „hæfilega metnaðarfull.“