Í gamla daga var fólk almennt dauðhrætt við drauga og ógnvekjandi afturgöngur sem áttu það til að ráðast á fólk og misþyrma þegar þeir náðu tökum á því. Þá héldu flestir í einfeldni sinni að þeir þyrftu einlægt að glíma við drauga eins og Írafells-Móra, Þorgeirsbola og Mývatnsskottu einkum þegar dimma tók og fólk var eitt á ferð.