Sænsk stjórnvöld ætla að afhenda stjórnvöldum í Úkraínu rússneskt flutningaskip sem grunað er um að hafa flutt farm af stolnum korntegundum frá hernumdum svæðum Úkraínu. Skipið tilheyrir svokölluðum skuggaflota Rússa.Flutningaskipið, sem er 96 metra langt, er í eigu skipafélagsins Caffa Shipping Ltd. Félagið reyndi ítrekað að koma í veg fyrir að skipið yrði afhent Úkraínumönnum og hafði þegar áfrýjað dómum tveimur lægri dómstóla þegar Hæstiréttur í Svíþjóð hafnaði endanlega kröfum þess 4. ágúst. Hvað er skuggafloti Rússa? Svokallaður „skuggafloti“ Rússlands er samansafn skipa sem eru notuð til að komast hjá viðskiptaþingunum vestrænna ríkja. Skipin eru gjarnan gömul, illa farin og án trygginga. Skip skuggaflotans eiga það sameiginlegt að hafa óljóst eignarhald. Þau finnast hvergi á formleg