Kerfisbreyting yrði á íslenskum landbúnaði sem hefði áhrif á nær alla grunnþætti hans færi Ísland í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í skýrslu sem Búnaðarþing lét gera um möguleg áhrif aðildar á íslenskan landbúnað. Formaður skýrslunnar óttast að aðild hefði í för með sér valdaframsal á íslenskum landbúnaði.