Um helmingur af íslenskum útflutningi fer til landa Evrópusambandsins. Það er lægra hlutfall en ætla mætti ef litið væri á tölur Hagstofunnar. Höfundar nýrrar skýrslu segjast hafa greint raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands, en ekki aðeins útflutningsleiðir.Skýrsla Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál, RSE, var unnin af Arnari Arinbjarnarsyni og Róberti Bragasyni hjá Samtökum skattgreiðenda.Þar yfirfóru þeir gögn frá innlendum og erlendum hagstofum og gagnabönkum til að fá gleggri mynd af utanríkisverslun Íslands. „HOLLANDSBJÖGUN“ Róbert segir umræðu um viðskiptin oft ónákvæma sem hafi stundum leitt til misskilnings um hverjir kaupi íslenskar vörur. Tölur Hagstofunnar endurspegli oftar en ekki útflutningsleiðir fremur en raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands.Svokallaðrar H