12 ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá vesturhluta landsins. Á öllu landinu verður deildarmyrkvi, þar sem skuggi tunglsins gengur að hluta til fyrir sólina. Á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Vesturlandi og Reykjanesskaga gengur skugginn að fullu fyrir sólina og þá verður almyrkvi.Deildarmyrkvinn hefst um korter í fimm. Þá snertir skuggi tunglsins fyrst sólarkringluna. Mikilvægt er að nota sólmyrkvagleraugu til að virða sólina fyrir sér.Hægt og rólega færist hann yfir og um hálfsex fer myrkvinn að gera vart við sig. Þó sífellt minna sjáist af sólinni er enn nauðsynlegt að hafa gleraugun á.Um korter í sex hefst almyrkvinn, fyrst á Hornströndum og svo færist skugginn yfir landið. Þegar skuggi tunglsins hylur alla sólarkringluna er hægt að taka gleraugun af til að virða fyrir sé