Ef marka mætti samfélagsmiðla þessa dagana mætti ætla að Ísland, raunar allur hinn vestræni heimur, stæði á barmi menningarstríðs. Að samfélagið væri klofið í tvær ósættanlegar fylkingar. En þegar litið er á skoðanakannanir og rannsóknir kemur í ljós að sagan er allt önnur.