Þrettán vilja verða forstjóri Stofnunar atvinnuveganna

Þrettán sóttu um nýtt embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna. Embættið var auglýst laust til umsóknar 7. júlí og umsóknarfrestur rann út 4. ágúst.Atvinnuvegaráðuneytið felur nefnd að fara yfir þær umsóknir sem bárust. Nefndin skilar atvinnuvegaráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda sem skipar að því loknu í embættið.Stofnun atvinnuveganna er ný stofnun sem tekur til starfa um áramót. Þar sameinast Fiskistofa, Matvælastofnun og Verðlagsstofa skiptaverðs í einni stofnun. Einnig er reiknað með að starfsmenn Heilbrigðiseftirlita sveitarfélaganna starfi á hinni nýju stofnun.
Þrettán vilja verða forstjóri Stofnunar atvinnuveganna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd