Ég hef búið í Danmörku í 8 ár. Ég borga 2,32% vexti af húsnæðisláni mínu í dag, og fimm árin þar á undan borgaði ég neikvæða vexti upp á 0,04% og það var ekkert neyðarúrræði. Ég hef aðgang að afborgunarlausum lánum, breytilegum vöxtum til 1, 3 eða 5 ára, föstum vöxtum til 30 ára, og lánamarkaði þar sem tugir stofnana keppa um viðskipti mín. Ekkert af þessu er í boði á Íslandi og sumt af þessu kann að hljóma ótrúlegt á Íslandi. En þetta er ekki skoðun, þetta er reynsla. Og þetta er ein ástæða þess að ég kýs Já þann 29. ágúst.