Útlendingastofnun metur að skipverjar á Bandero, skipi Paul Watsons samtakanna, hafi verið hér á landi í ólögmætum tilgangi og því var ákveðið að vísa þeim úr landi.Skipið hefur verið kyrrsett í Sundahöfn að beiðni Samgöngustofu síðan á föstudagsmorgun eftir að Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn þess í kjölfar þess að Bandero reyndi að hefta för hvalveiðiskipsins Hvals 9, skips Hvals hf og hlýddi ekki fyrirmælum Gæslunnar.Þetta herma heimildir fréttastofu, en Útlendingastofnun hefur ekki svarað fyrirspurnum um á hvaða grundvelli brottvísunin er byggð.Áhöfninni, alls 21 skipverja, var kynnt þessi ákvörðun í fyrrakvöld. Fólkið er frjálst ferða sinna innan höfuðborgarsvæðisins en þarf að sinna tilkynningaskyldu hjá lögreglu á hverjum degi.Brottvísun fylgir endur