Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar tvö mál er varða stórfellt brot á lögum um ávana- og fíkniefni.Aðfaranótt 29. júlí stöðvaði tollgæslan á Keflavíkurflugvelli þrjá kólumbíska ríkisborgara sem komu hingað til lands frá Spáni. Við leit í farangri þeirra fundust pakkningar sem innihéldu 2,4 kíló af kókaíni.Hin grunuðu voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til 5. ágúst. Eftir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum fór fram á framlengingu gæsluvarðhalds úrskurðaði Héraðsdómur hin grunuðu í gæsluvarðhald til 12. ágúst. HANDTÓKU TVO KÓLUMBÍUMENN TIL VIÐBÓTAR DEGI SÍÐAR Degi eftir að Kólumbíumennirnir komu til landsins stöðvaði tollgæslan tvo ferðamenn sem einnig komu frá Spáni. Við leit í farangri þeirra fundust pakkningar sem innihéldu 1,7 kíló af kókaíni.„Pakkningarnar reyndust vera sams kona