Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að aka inn í hóp fólks í München

Dómstóll í München í Þýskalandi dæmdi í morgun afganskan karlmann á þrítugsaldri í lífstíðarfangelsi fyrir að aka bíl inn í mannfjölda í borginni í febrúar í fyrra.Tveggja ára stúlka og móðir hennar létu lífið í árásinni og á fimmta tug særðust. Dómurinn úrskurðaði að brot mannsins teldust sérlega alvarleg, sem þýðir að mun erfiðara verður fyrir manninn að fá nokkru sinni lausn úr fangelsi.Maðurinn ók Mini Cooper inn í kröfugöngu á vegum stærsta verkalýðsfélags Þýskalands, Verdi. Bíllin stöðvaðist 23 metrum eftir að hann ók á fólkið því „framhjólin misstu snertinguna við jörðina vegna fólks sem lá fyrir framan og undir bílnum,“ að því er segir í ákærunni. KOM FYLGDARLAUS TIL ÞÝSKALANDS 2016 Saksóknarar sögðu í réttarhöldunum að trúarlegar ástæður hefðu legið að baki verknaðinum. Hann ha
Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að aka inn í hóp fólks í München

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd