Íslendingi í Danmörku synjað um skráningu á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu

Úrskurðarnefnd kosningamála staðfesti í gær ákvörðun Þjóðskrár um að synja íslenskum ríkisborgara búsettum í Danmörku um að vera tekinn á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.Kærandi sótti um skráningu á kjörskrá 28. júlí. Degi síðar mat Þjóðskrá umsóknina fullnægjandi. Hann var því skráður á kjörskrá frá 1. desember 2026 til 1. desember 2030.Kærandi krafðist þess þá að vera tekinn á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB 29. ágúst. Þeirri beiðni synjaði Þjóðskrá með vísan í kosningalög. UMSÆKJENDUR SKRÁÐIR Á KJÖRSKRÁ 1. DESEMBER Kosningalög kveða á um að Íslendingar búsettir erlendis missi kosningarétt eftir 16 ára dvöl erlendis. Til að komast aftur á kjörskrá þarf að sækja um það. Umsóknin gildir í fjögur ár frá 1. desember næst eftir
Íslendingi í Danmörku synjað um skráningu á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd