Enginn munur er á fjölda þeirra sem hyggjast segja já og þeirra sem ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið 29. ágúst.Þetta sýna niðurstöður nýrrar Gallup-könnunar sem gerð var fyrir hreyfinguna Áfram Ísland en hún er andvíg aðildarviðræðum. Fjallað er um könnunina í Morgunblaðinu í dag.46% aðspurðra eru andvíg áframhaldandi aðildarviðræðum og sömuleiðis eru 46% hlynnt. Átta prósent eru enn óákveðin.Í Reykjavík eru 55% aðspurðra fylgjandi áframhaldandi aðildarviðræðum en 56% andvíg á landsbyggðinni. Um helmingur þeirra sem búa í Kraganum er fylgjandi og rúm 40% á móti. MIKILL MUNUR MILLI KJÓSENDA STJÓRNAR- OG STJÓRARANDSTÖÐUFLOKKA Líkt og búast má við eru kjósendur stjórnarflokkanna, sér í lagi Viðreisnar og Samfylkingar, hlynnti