Ekki er rétt að sænska krónan sé fasttengd evrunni. Sænska krónan er með fljótandi gengi, rétt eins og sú íslenska, en í því felst að gengi hennar stjórnast af framboði og eftirspurn á hverjum tíma.Í samfélagsmiðlamyndbandi frá hreyfingunni Sjá, sem berst fyrir því að Íslendingar gangi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið, er því haldið fram að sænska krónan sé tengd við evruna.Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, lýsir í myndbandinu reynslu sinni af því að taka húsnæðislán í Svíþjóð.„Ég hef búið í Svíþjóð, átt íbúð þar og verið með húsnæðislán í öðrum gjaldmiðli, sænskri krónu – sem er tengd við evru – og ég borgaði svo miklu lægri vexti þar,“ segir hún og lætur fylgja með að sænska krónan sé „tengd evrunni“. Hvað kemur fram í myndskeiðinu? „Undanfarið erum við b