Vaxandi lægð sendir rigningu yfir allt landið

Vaxandi lægð vestur af Reykjanesi sendir regnsvæði austur yfir allt landið í dag. Á norðaustanverðu landinu verður þurrt að mestu fram á síðdegið. Vindur verður hægur víðast hvar nema norðvestan til þar sem spáir 8 til 13 metrum á sekúndu.Þar gætu allhvassir strengir við fjöll verið varasamir ökumönnum á bílum sem taka á sig mikinn vind.Hitinn verður á bilinu 8 til 16 stig í dag, hlýjast á Austurlandi.Sama lægð stýrir veðrinu á morgun. Þá má búast við rigningu á öllu landinu en úrkomulítið á Vesturlandi síðdegis.Það má víða búast við norðaustan strekkingi á morgun. Allhvassir strengir geta látið á sér kræla í fleiri landshlutum, til dæmis á Vesturlandi og við suðausturströndina. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestan til. VINDUR, ÚRKOMA OG VOSBÚÐ Lægðin hefur enn áhrif á veðrið á laugard
Vaxandi lægð sendir rigningu yfir allt landið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd