Sex almennir borgarar voru drepnir í árásum Rússa á Úkraínu í nótt. Frá þessu greina úkraínsk yfirvöld á Telegram.Mannskæðar árásir voru gerðar á bæinn Balakliya í austurhluta landsins og á Sumy í norðurhlutanum. 19 særðust í Sumy. ALLIR DRÓNAR ÚKRAÍNUHERS SKOTNIR NIÐUR Rússlandsher skaut niður 605 dróna Úkraínuhers í nótt yfir Rússlandi og Krímskaga. Rússneska varnarmálaráðuneytið segir loftvarnarkerfi landsins hafa skotið alla dróna Úkraínumanna niður í árásum næturinnar. Flutningsmiðstöð netverslunarrisans Wildberries í Tver-héraði varð fyrir lítilsháttar skemmdum þegar brak hafnaði á henni. Í Jaróslavl-hérði kviknaði í húsum og bílar urðu fyrir skemmdum eftir að brak frá drónum féll til jarðar. SÍÐASTI MÁNUÐUR SÁ MANNSKÆÐASTI Í ÚKRAÍNU Í RÚM FJÖGUR ÁR Rússar og Úkraínumenn hafa h