Útgerðarstjóri hjá Royal Iceland segir mikil tækifæri sem hafi skapast fyrir íslenskar vörur í Kína geta verið í uppnámi með aðild að ESB. „Mikilvægt væri þá að skoða hvaða önnur tækifæri myndu opnast með Evrópusambandsaðild inn á markaði sem við höfum ekki aðgang í dag,“ segir hann. Fyrirtækið var að semja um sölu á grjótkrabba til Kína.