Stjórnvöld í Íran segjast vera við það að ná samkomulagi við Óman um opnun siglingaleiðar gegnum Hormússund. Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, segir samkomulagið „á lokametrunum“ en gefur ekkert frekar upp um innihald þess.Hann segir að samningur við Óman tryggi öruggar siglingar um sundið þar sem öryggi sæfarenda sé enn ógnað af hafnbanni Bandaríkjanna á íranskar hafnir.Embættismenn frá Bandaríkjunum og Óman hafa ekki tjáð sig um samkomulagið.Frá því að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran í febrúar hafa írönsk stjórnvöld haldið Hormússundi nánast lokuðu. Sundið er einkar mikilvæg siglingaleið en fyrir stríðið var um fimmtungur af olíu og jarðgasi heimsins fluttur um það.Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á þriðjudag að Íranar yrðu fyrir hörðum árásum ef ekki tækis