Farsóttarfræðingur skrefi nær öldungadeildarsæti

Abdul El-Sayed, vinstri sinnaður demókrati ættaður frá Egyptalandi, sigraði í prófkjöri Demókrataflokksins í Michigan í gær. Hann verður því frambjóðandi flokksins fyrir öldungadeild í þingkosningunum í Bandaríkjunum í nóvember. El-Sayed sigraði miðjukonuna Haley Stevens sem naut stuðnings margra háttsettra innan flokksins.El-Sayed fæddist í Detroit og á egypskan föður og bandaríska móður. Hann er farsóttarfræðingur og varð síðar forstöðumaður lýðheilsu í Wayne-sýslu í Michigan. Hann nýtur stuðnings öldungadeildarþingmannsins Bernie Sanders og borgarstjóra New York-borgar, Zohran Mamdani.Til að tryggja sér sæti í öldungadeildinni þarf El-Sayed að sigra Mike Rogers í þingkosningunum sem verða í Bandaríkjunum í nóvember. Rogers er tilnefndur fyrir Repúblikanaflokkinn og nýtur stuðnings Donal
Farsóttarfræðingur skrefi nær öldungadeildarsæti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd