Forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, Gianni Infantino, ætlar ekki að segja af sér sem forseti sambandsins.Leiðtogahópur FIFA sendi frá sér yfirlýsingu eftir krísufund sem haldinn var með Infantino á skrifstofum FIFA í Rabat í Marokkó í gær. Leiðtogahópurinn sendi frá sér yfirlýsingu eftir fundinn þar sem segir að Infantino njóti fulls trausts þeirra sem kjörinn leiðtogi aðildarsambandanna 211 sem eru í FIFA.Leiðtogahópurinn viðurkennir ákveðin mistök eftir að upplýsingar um hugmyndir Infantinos um að stofna dótturfyrirtæki FIFA sem yrði að hluta í eigu einkaaðila, láku í fjölmiðla.Í yfirlýsingunni segir að það hafi ekki verið markmiðið að útiloka FIFA-ráðið og aðildarfélög FIFA frá undirbúningsferlinu og það hefði átt að standa betur að því. FIFA-ráðið og aðildarfélög voru beðin afs