Barbie-dúkkur fá sérhannaða kjóla hjá fatahönnuðum framtíðarinnar

Fatahönnuðir framtíðarinnar tengja saman huga og hendur á sumarnámskeiði í Hönnunarsafni Íslands.Þar hafa Barbie-dúkkur fengið sérhannaða kjóla og sparijakka undanfarna daga.Á námskeiðinu læra krakkar að hanna og búa til sín eigin föt frá grunni. Og prófa sig áfram með snið og skraut.Biðlistar hafa verið á öll námskeið sumarsins og margir fara heim með draum um að verða fatahönnuður í framtíðinni.
Barbie-dúkkur fá sérhannaða kjóla hjá fatahönnuðum framtíðarinnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd