Nokkrar vikur gætu liðið þar til skipverjar af Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna sem liggur kyrrsett í Sundahöfn, yfirgefa landið. Þeim hefur öllum verið vísað úr landi.Embætti ríkislögreglustjóra vinnur að undirbúningi heimferðar fólksins, sem kemur víða að. Misflókið er að vísa fólkinu úr landi, það fer eftir aðstæðum og ríkisfangi og gæti tekið frá nokkrum dögum til nokkurra vikna.Á meðan er fólkið á eigin vegum en má ekki fara út fyrir höfuðborgarsvæðið og þarf að tilkynna sig til lögreglu á hverjum degi.Brottvísun skipverja af Bandero gæti tekið nokkrar vikur. Atvinnuvegaráðherra segir það ekki þeim að þakka að ekki hafi orðið slys á fólki. Hún segir að erlend ríki setji veiðarnar oft á dagskrá þegar verið sé að semja og ræða um millilandaviðskipti. ÁSÆTTANLEG MÁLALOK AÐ MATI RÁ