Íslenski tölvuleikurinn Beat Battles nýtur gríðarlegra vinsælda innan Roblox, eins stærsta stafræna afþreyingarvettvangs í heimi, um þessar mundir.Tónlistartæknifyrirtækið Overtune stendur að baki Beat Battles. Fulltrúar Roblox, stærðarinnar tölvuleiks sem er nokkurs konar stafrænt afþreyingarsvæði og samfélagsmiðill, höfðu samband við Overtune að fyrra bragði og buðu fyrirtækinu að búa til sérstakan tölvuleik sem byggði á tónsmíðaforriti þeirra.Beat Battles snýst um að búa til tónlist og keppa um hver eigi vinsælasta lagið innan Roblox. Leikurinn er eins konar stafræn plötusnúðskeppni eða „DJ-battle“ upp á ensku. 900 ÞÚSUND NOTENDUR SÍÐUSTU VIKUR Hann hefur verið valinn á lista hjá Roblox yfir leiki sem er gert hátt undir höfði á vettvanginum. Yfir milljón spilarar hafa spilað leikinn