Faldi lík föður síns í frystikistu og hirti lífeyrinn

Lögreglan í Grikklandi hefur handtekið mann sem faldi lík föður síns í frystikistu í rúm tvö ár.Málið komst upp þegar lögreglan í Lakóníu í Grikklandi fékk ábendingu um að ekki hefði sést til föður mannsins, sem fæddur var 1936, um nokkurt skeið.Þegar sonurinn var kallaður til yfirheyrslu sagði hann við lögreglu að faðir sinn hefði flutt til Aþenu. Þegar sú fullyrðing stóðst ekki hófu lögregluyfirvöld leit á hóteli sem sonurinn átti og bjó á. Í kjallara hússins fannst lík föður hans í frystikistu ásamt loftbyssu.Maðurinn sagði föður sinn hafa látist af eðlilegum orsökum fyrir um tveimur og hálfu ári. Hann sagðist þá hafa ákveðið að leyna andlátinu til að halda áfram að fá lífeyrisgreiðslur hans.Sonur hins látna hefur nú verið ákærður fyrir ranga skýrslugjöf, ítrekuð fjársvik og brot á vopn
Faldi lík föður síns í frystikistu og hirti lífeyrinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd