Grunur um manndráp í Kópavogi: Mennirnir tengdir fjölskylduböndum

Maðurinn sem var handtekinn í síðustu viku vegna andláts annars manns um sjötugt tengist honum fjölskylduböndum. Mennirnir eru báðir Íslendingar. Þetta herma heimildir fréttastofu.Síðdegis var greint frá því að karl á fimmtugsaldri sætti gæsluvarðhaldi vegna andláts annars manns í heimahúsi í Kópavogi um þarsíðustu helgi.E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að maðurinn hafi látist sunnudaginn 26. júlí. Lögregla hefur til skoðunar hvort sá sem var handtekinn hafi orðið hinum manninum að bana. Að öðru leyti verst lögreglan frétta af rannsókn málsins.Sá sem var handtekinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. september á grundvelli almannahagsmuna.
Grunur um manndráp í Kópavogi: Mennirnir tengdir fjölskylduböndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd