ÖSE bendir á glufur í reglum um fjármögnun og netbaráttu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, vill senda sérfræðingateymi til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið 29. ágúst. Þótt mikið traust ríki til framkvæmdar kosninganna telur stofnunin að skoða þurfi nánar kosningabaráttu, fjármögnun hennar, netumhverfi og fjölmiðlaumfjöllun.Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem fréttastofa óskaði eftir að fá afhenta í dag. Fyrr í sumar kom hingað til lands sendinefnd á vegum ÖSE og ræddi við forsvarsmenn ráðuneyta, stofnana og fjölmiðla. Skýrslan er afrakstur þeirrar heimsóknar. GLUFUR Í LAGAUMHVERFI - SÉRSTAKLEGA VARÐANDI FJÁRMÖGNUN KOSNINGABARÁTTUNNAR Í skýrslunni kemur fram að mikið traust sé til íslenskrar kosningastjórnar og að þjóðaratkvæðagreiðslan verði að öllum líkindum skipulögð af fagmenn
ÖSE bendir á glufur í reglum um fjármögnun og netbaráttu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd