Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff eru sögð standa í skilnaðarferli samkvæmt frétt Vísis í morgun. Í skriflegu svari til fréttastofu RÚV segist Dorrit hvorki geta játað því né neitað, en leggur ríka áherslu á að tengsl hennar við landið muni ekki breytast.Í fyrirspurn fréttastofu til Dorritar Moussaieff var hún spurð hvort hún gæti staðfest fréttir af skilnaði þeirra Ólafs Ragnars og hvort slíkt myndi breyta sambandi hennar við Ísland.„Ég get hvorki staðfest né neitað því ég veit það ekki,“ segir Dorrit í svari sínu.Hún bætir því við að samband hennar við Ísland sé „ekki samningsatriði“.„Ég hef eytt fleiri dögum ævi minnar á Íslandi en í nokkru öðru landi! Og mun halda því áfram. Ég varð ástfangin af Íslandi um leið og fætur mínir snertu jörðina og ís