Úkraínsk yfirvöld hafa fyrirskipað mörg hundruð fjölskyldum með börn að yfirgefa borgina Kramatorsk í austurhluta Úkraínu. Rússneskar hersveitir sækja fram af miklum krafti í nágrenni borgarinnar.Vadym Filashkin, ríkisstjóri í Donetsk-héraði, segir ákvörðunina um að rýma borgina erfiða en jafnframt nauðsynlega.„Öryggisástandið fer versnandi og því er óásættanlegt að börn búi áfram við stöðuga ógn sem stafar af rússneskum árásum,“ segir Filashkin. 525 VERÐA FLUTT NAUÐUG FRÁ KRAMATORSK Alls verða 525 börn og forráðamenn þeirra flutt nauðug frá Kramatorsk. Samkvæmt greiningarhópnum DeepState, sem fylgist með framvindu stríðsins og er talinn tengjast úkraínska hernum, eru rússneskar hersveitir nú innan við 20 kílómetra frá austurjaðri borgarinnar.Kramatosk hefur verið mikilvæg miðstöð fyrir