Karlmaður á fimmtugsaldri situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti karlmanns í heimahúsi í Kópavogi um þarsíðustu helgi.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.Maðurinn sem lést var um sjötugt.Sá sem er í haldi var handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. ágúst. Það hefur var framlengt í Héraðsdómi Reykjaness til 2. september á grundvelli almannahagsmuna.