Að minnsta kosti einn lést og ellefu særðust í árásum Ísraelshers á skotmörk í suðurhluta Líbanons í dag. Á sama tíma eiga fulltrúar ríkjanna tveggja í samningaviðræðum í Róm um að binda enda á átökin.„Til að bregðast við augljósu broti hryðjuverkasamtakanna Hezbollah á vopnahléinu hefur Ísraelsher hafið nákvæmar árásir á suðurhluta Líbanons,“ segir í yfirlýsingu hersins. SENDU ÚT RÝMINGARVIÐVÖRUN FYRR Í DAG Fyrr í dag hvatti Ísraelsher íbúa í þorpi á svæðinu til að yfirgefa heimili sín tafarlaust vegna yfirvofandi árása á Hezbollah. Þetta er í fyrsta sinn í nokkrar vikur sem herinn gefur út viðvörun af þessu tagi.Samkvæmt ríkisfréttastofu Líbanons fóru ökutæki ísraelska hersins á útjaðar þorpsins Aita al-Jabal í suðurhluta Líbanons og skutu í átt að því og nærliggjandi landi. Þá sáust