Stjórnandi verksmiðju sem framleiðir sjálfsprengidróna fyrir rússneska herinn er sagður alvarlega særður eftir að bíll hans sprakk í loft upp í Úralfjöllunum í gær. Vladimir Tkachuk var fluttur á sjúkrahús og ku vera í alvarlegu ástandi á gjörgæslu en lífvörður hans er látinn.