Sprengidróni fannst nærri úkraínskum fraktflugvélum í Leipzig

Flugvél flaug á óþekktan fljúgandi hlut í um sex kílómetra fjarlægð frá flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi seint í gærkvöld. Hún lenti heilu og höldnu skömmu síðar.„Flugvélinni var ætlað að lenda í Leipzig en hún þurfti að hætta við lendinguna,“ sagði talsmaður innanríkisráðuneytis Þýskalands á blaðamannafundi. „Hún klessti svo á óþekktan hlut,“ sagði hann og bætti við að hún hefði lent í Hannover. Minni háttar skemmdir voru á nefi vélarinnar. FUNDU DRÓNA SEM VAR HUGSANLEGA HLAÐINN SPRENGIEFNI Skömmu síðar fannst dróni á flugvellinum, nærri fjórum úkraínskum flutningaþotum, sem meðal annars hafa verið notaðar til flutninga fyrir NATO. Þýska lögreglan staðfesti í dag að dróninn hefði verið búinn óhefðbundnum sprengi- og íkveikjubúnaði.Þýska lögreglan sagði í morgun að sprengisveitardrón
Sprengidróni fannst nærri úkraínskum fraktflugvélum í Leipzig

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd