Bíða eftir myndefni til að staðfesta áreksturinn á tunglinu

Vísindamenn reikna með að brotlending hluta eldflaugar SpaceX í morgun skilji eftir sig fjögurra metra djúpan gíg á tunglinu. Beðið er eftir myndefni til að hægt sé að staðfesta áreksturinn.Gert er ráð fyrir að hluti eldflaugarinnar, sem er á stærð við rútu og vegur fjögur tonn, hafi skollið á tunglinu á nærri átta þúsund og sjö hundruð kílómetra hraða á klukkustund.Geimruslið var hluti af SpaceX Falcon 9 eldflaug sem flutti ómannað tunglfar út í geim í fyrra. Eldflaugarhlutum sem þessum er sleppt í þrepum eftir því sem líður á geimferðina. Þeir falla þá yfirleitt í átt til jarðar og í hafið eða brenna upp í gufuhvolfinu.Vegna þess að geimskotið þurfti meiri kraft en gengur og gerist endaði þessi hluti flaugarinnar í geimnum, í stað þess að hrapa til jarðar. Þar hefur hann reikað stefnulau
Bíða eftir myndefni til að staðfesta áreksturinn á tunglinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd