Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á hálendinu

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss í Þingeyjarsveit. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Gæslunnar. Vísir greindi fyrst frá.Kolbrún Björg Jónsdóttir aðalvarðstjóri hjá lögreglunni segir karlmann hafa ekið fram af fjögurra metra hengju nærri skálanum Slakka, sem einnig kallast Bjartsýnisbúðir, á hálendinu. Hún segir manninn með meðvitund. Útkallið hafi borist laust fyrir klukkan 12.Ásgeir segir þyrluna á leiðinni norður. Hann gerir ráð fyrir að maðurinn verði fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri.Margrét Gunnarsdóttir hjá Landsbjörgu segir björgunarsveitina Þingey og hjálparsveit skáta í Reykjadal á svæðinu. Áætlað er að þyrlan lendi um 14:40. Hún gerir ráð fyrir því að björgunarsveitarfólk þurfi að ferja hann með börum á stað þar sem þyrlan geti lent
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á hálendinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd