Það þarf ekki að vera heiðskírt, né þarf að vera með kíki til þess að virða sjónarspilið fyrir sér þegar Íslendingar og aðrir sem eru staddir á landinu fá færi á að upplifa einhverja allra fallegustu sýningu náttúrunnar, almyrkva á sólu. Aftur á móti er nauðsynlegt að útvega sér eru þartilgerð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum á meðan deildarmyrkva stendur.