Hvalir gleypa í sig síld úti fyrir Ólafsfirði

Vaðandi síld er við Ólafsfjörð þar sem stórar torfur af síld ganga nærri landi. Frá þessu greinir Freyr Antonsson, skipstjóri og framkvæmdastjóri Arctic Sea Tours. Hann sendi fréttastofu meðfylgjandi myndskeið af tveimur hnúfubökum gæða sér á síld. Auk þeirra hafa hrefnur og hópar höfrunga fylgt síldinni og étið.Freyr segir mikið líf vera í Eyjafirði. Lífríkið hafi eflst með hverju árinu síðan hann byrjaði að fylgjast með firðinum 2009. Fleiri hnúfubakar heimsæki fjörðinn, hrefnur séu aftur orðnar algengar og höfrungar sjáist víða. Þá segir Freyr að hann hafi aldrei séð jafn mikið af lunda og öðru fuglalífi við fjörðinn.„Hvalirnir éta gríðarlegt magn af æti en gegna um leið mikilvægu hlutverki við að efla lífríki hafsins. Ég segi gjarnan að þeir séu bændur hafsins,“ segir Freyr.
Hvalir gleypa í sig síld úti fyrir Ólafsfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd