Öllum áhafnarmeðlimum Bandero hefur verið birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann. Þeir eru nú frjálsir ferða sinna innan höfuðborgarsvæðisins en ríkislögreglustjóri vinnur að framkvæmd brottvísunar. Ekki er loku fyrir það skotið að skipverjarnir sigli einfaldlega á brott með Bandero.