Arnar Eggert Thoroddsen skrifar:Anya Shaddock er með efnilegustu söngkonum okkar og hefur verið á einkar góðu skriði undanfarin misseri. Anya er 24 ára söngkona og lagahöfundur frá Fáskrúðsfirði og Boston og S7yndir er önnur plata hennar. Frumburðurinn, Inn í borgina (2024), hreyfði við fólki og klárt að hér færi mikið efni. Byrjunarbras var eitthvað, eins og gengur, en allt innan eðlilegs ramma. Svona reit ég um plötuna fyrir Ríkisútvarpið: „Þetta er sterkur frumburður hjá Anyu. Hún kann vel að semja lög, þau standa vel flest hver, og í söng er hún einlæg, sannfærandi og „nálægt“ okkur. Það er líka þægilegur fersk- og hráleiki yfir sem gefur tvennt til kynna. Það er rými til bætinga og framþróunar, þó það nú væri, en um leið er hreinleiki í list Anyu sem þarf að passa upp á. Framþróunin,