Flugvél flaug á óþekktan fljúgandi hlut nærri Leipzig

Flugvél flaug á óþekktan fljúgandi hlut í um sex kílómetra fjarlægð frá flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi seint í gærkvöld. Hún lenti heilu og höldnu skömmu síðar.„Flugvélinni var ætlað að lenda í Leipzig en hún þurfti að hætta við lendinguna,“ sagði talsmaður innanríkisráðuneytis Þýskalands á blaðamannafundi. „Hún klessti svo á óþekktan hlut,“ sagði hann og bætti við að hún hefði lent í Hanover. Minni háttar skemmdir voru á nefi vélarinnar.Starfsemi flugvallarins var stöðvuð og nokkrar flugvélar sem voru á leið til lendingar voru sendar annað. Starfsemin færðist í eðlilegt horf í morgun. Önnur flugbrautin er þó lokuð vegna rannsóknar lögreglu. FUNDU DRÓNA SEM VAR HUGSANLEGA HLAÐINN SPRENGIEFNI Þýski miðillinn Bild segir að dróni með hvellhettu hafi fundist á Leipzig/Halle-flugvelli.
Flugvél flaug á óþekktan fljúgandi hlut nærri Leipzig

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd