Sjávarútvegsmál yrðu ótvírætt stærsta málið í aðildarviðræðum Íslands við ESB, enda vægi sjávarútvegs í íslensku efnahagslífi enn gríðarmikið þótt úr því hafi dregið sem hlutfall af landsframleiðslu og útflutningstekjum. Landbúnaðarmál eru líka mikilvæg, ekki vegna efnahagslegs vægis greinarinnar heldur vegna ótta um að matvælaframleiðsla á Íslandi verði ekki samkeppnisfær ef núgildandi verndar- og stuðningsráðstafanir falla brott. Í skipulagi aðildarviðræðna er...