Óboðnir gestir hafa reglulega truflað atkvæðagreiðslur á fylkisþingi Mato Grosso í Brasilíu að undanförnu.Þessar boðflennur eru af krúttlegra taginu, flóðsvín sem búa í garði í grennd við þinghúsið.Nayara Bueno, starfsmaður í þinghúsinu, myndaði heimsókn flóðsvína 30. júlí þegar hún reyndi að stía þeim út úr húsinu.„Þau koma hingað frekar oft svo við erum orðin vön því að sjá þau,“ segir Bueno.Flóðsvín hafa á síðustu árum notið mikillar hylli á netinu meðal fólks um heim allan. Þau þykja einkar róleg í fasi og eru miklar félagsverur. Tegundin er stærsta nagdýr jarðarinnar en fullvaxta flóðsvín getur náð allt að 80 kílóa þyngd.